Um Trjáræktarklúbbinn

Trjáræktarklúbburinn var stofnaður 9. des. 2004, í samvinnu við Garðyrkjufélag Íslands og Skógræktarfélag Reykjavíkur, og er vettvangur áhugafólks um aukna fjölbreytni trjágróðurs í ræktun hér á landi. Í því skyni stendur klúbburinn fyrir fræðslufundum, kynningarefni og skoðanaskiptum auk þess að útvega fræ, plöntur og græðlinga sem meðlimir sjálfir geta ræktað. Stefnt er að því að klúbburinn fái land við Mógilsá, þar sem unnið verður að því að koma á fót trjásafni (arboretum) sem byggt verður á þeim stofni sem þar er þegar fyrir hendi.

Klúbburinn pantar sameiginlega fræ til ræktunar og geta meðlimir fengið það gegn því að afhenda klúbbnum hluta af þeim plöntum sem upp koma. Allir eiga síðan rétt á að fá plöntur úr safni klúbbsins. Leitast er við að halda vel utan um skráningu á plöntum svo að hægt sé að fylgjast með vexti þeirra og viðgangi um ókomin ár.

Klúbburinn er ætlaður öllum sem áhuga hafa á að rækta tré og runna og nýtist sérstaklega vel þeim sem hafa landspildu til umráða og ræktunar, t.d. við sumarbústaði. Plöntur og fræ fá meðlimir endurgjaldslaust en kostnaður er greiddur af klúbbgjöldum sem eru 3.000 kr. á ári.

Einstaklingar, félög og fyrirtæki geta gerst styrktarmeðlimir og greiða þá fjórfalt árgjald en fá á móti valdar trjáplöntur frá klúbbnum auk þess sem þeir geta tekið þátt í almennri starfsemi hans eftir vild.

Þær plöntur sem ræktaðar eru á vegum klúbbsins eru af tegundum sem hér hafa lítið eða ekkert verið ræktaðar áður. Af þeim sökum verða meðlimir að vera undir það búnir að ræktunin gangi misvel – sumt mun mishepnast alveg en annað koma skemmtilega á óvart. Þetta er klúbbur fyrir fólk sem er tilbúið að prófa eitthvað nýtt án þess að árangur sé tryggður – klúbbur fyrir ævintýrafólk.

Alls eru nú nær 70 meðlimir í klúbbnum.

Stjórn klúbbins skipa:
* Árni Þórarinsson fyrir aðfanganefndina
* Axel Kristinsson fyrir trjásafnið
* Halla Jónsdóttir meðstjórnandi
* Lilja Harðardóttir ritari
* Paul Richardson fyrir gróðurhúsnefndina
* Sveinn Þorgrímsson formaður
* Valur Norðdalh gjaldkeri

Heiðursfélagar eru:
* Vigdís Finnbogadóttir, fyrv. forseti Íslands
* Hermann Lundholm
* Jóhann Pálsson, fyrv. garðyrkjustjóri